Það sem við gerum.

Við blöndum saman sköpunargáfu og stefnumiðaðri hugsun til að draga fram allt það besta úr þínu vörumerki. Hvernig getum við hjálpað þér að skína?

Þjónustur

Auglýsingar

Þær lyfta sýnileika vörumerkis, ýta undir sölu, byggja upp vörumerkjaímynd og virkja tengsl við neytendur.



Efnið sem við sköpum er til þess að grípa, vekja áhuga og fræða þína fylgjendur.
Við hugsum fyrir þig og framkvæmum með þínu samþykki.

Stafrænar auglýsingar

Við munum auglýsa þitt fyrirtæki nákvæmlega þar sem tilvonandi viðskiptavinir eru.
Við notum nýjustu tækni og aðferðir til að miðla öllum helstu upplýsingum til viðskiptavina ykkar og lyfta vörumerkjaímynd ykkar upp á stafræna landslaginu.

Tölvupóstherferðir

Komdu skilaboðum þínum beint í rafræna pósthólf viðskiptavina þinna.
Markaðssetning með tölvupóstherferðum er gríðarlega öflugt og hagkvæmt tól þar sem hægt er að stilla markhópa ansi auðveldlega með árangursríkum og ítarlegum mælingaraðferðum.
Við veitum aðstoð við uppsetningu á slíku kerfi ásamt umsjón.

Prent

Ekki má vanmeta auglýsingakrafta prentsins.
Dagblöð, tímarit, bæklingar eða skilti, allt sem flokkast ekki sem “stafrænt”, við komum ykkur þangað.

Auglýsingagerð

Við framleiðum auglýsingar fyrir þá vettvanga sem þær eiga að birtast á, sem láta þitt fyrirtæki standa út úr hópnum og munu lyfta vörumerkjavitund ykkar á næsta stig.
Með vel smíðuðum auglýsingum munum við færa athygli fólks beint til ykkar.

Markaðsáætlanagerð

Við munum sjá um skipulagið á markaðsáætlun ykkar af nákvæmni og sérfræðiþekkingu, til þess að auglýsingarnar berist til rétta markhópsins á réttum tíma, með réttum aðferðum.

Þjónustur

Myndbönd

Myndbönd eru það sem fólkið vill sjá.

Þau skemmta, kæta og bæta daginn hjá þínum fylgjendum. Þau snúast í kringum þínar vörur, vörumerki og þjónustur, með því markmiði að kveikja upp áhuga og mynda tengsl við fylgjendur þína á óbeinan hátt.

Þau eru stutt og alls ekki of alvarleg!

Færslur

Við munum birta myndböndin sem við framleiðum fyrir ykkur sem færslur
á ykkar helstu samfélagsmiðla.
Sjónrænar sögur myndbandanna munu bera skilaboðin ykkar til viðskiptavina á
áhrifaríkan og grípandi hátt.
Skemmtilegu myndböndin á samfélagsmiðlum ykkar munu tryggja skemmtilegt “feed”, sem gerir netverja áhugasama.

Story

Myndböndin sem við framleiðum fyrir ykkur munu einnig birtast í “story” á ykkar samfélagsmiðlum, sem er skemmtilegur eiginleiki þar sem stories eru bitastæð, stutt og þægileg innsýn í samfélagsmiðla og starfsemi fyrirtækja.

TikTok

Í hraða heimi TikTok myndbanda er mikilvægt að standa út.
Með sköpunargáfu okkar og þekkingu grípum við nýjustu “trend” og tískubylgjur til að fanga athygli áhorfenda.
Með okkur getur þitt fyrirtæki náð að fanga tækifærin sem TikTok getur haft á sýnileika þess.

Þjónustur

Samfélagsmiðlaumsjón

Leyfðu okkur að sjá um birtingar og utanumhald á samfélagsmiðlum ykkar.
Undir okkar umsjón verða samfélagsmiðlarnir ykkar fagmannlegir og nýttir til fullnustu.

Meta (Facebook og Instagram)

Facebook og Instagram eru stærstu samfélagsmiðlar heims, því er mikilvægt að vera með öflugan en á sama tíma líflegan og skemmtilegan prófíl á þeim miðlum.
Við munum virkja Meta reikninga ykkar til þess að fyrirtækið ykkar sé með sterka viðveru á samfélagsmiðlunum tvemur.
Við munum stýra efnisgerð, birtingaplani og samskiptum og skapa þannig virkt samfélag.

LinkedIn

Viðvera á LinkedIn er afar mikilvæg fyrir fyrirtæki í B2B rekstri sem vilja miðla sínum skilaboðum til annara fyrirtækja.
Við munum hámarka sýnileika ykkar á þeim miðli með sterkum skilaboðum sem stækka tengslanet ykkar á árangursríkan hátt.

TikTok

Á þessum öfluga miðli hreyfast hlutir hratt.
Leyfðu okkur að vera með puttann á púlsinum fyrir þitt fyrirtæki og tryggja það að viðvera ykkar sé vel sýnileg, með sérhæfðum lausnum fyrir þetta einstaka umhverfi.
Skemmtileg, stutt myndbönd sem fræða og kæta.

Þjónustur

Hönnun

Hönnun er ekki bara fagurfræði, heldur einnig öflugt tól til sjónrænna samskipta sem mótar ímynd fyrirtækja og knýr undir jákvæð viðbrögð notenda.

Við skiljum þetta mikilvæga hlutverk sem hönnun gegnir og lifum fyrir það að skapa framúrskarandi lausnir á sviði hönnunar.

Mörkun

Við þróum áberandi vörumerki með eftirminnanlegum kennimerkjum (logo) og grípandi mörkun (branding) sem endurspegla gildi ykkar og ímynd.

Efnissköpun

Við vitum að góð hönnun skilar góðum niðurstöðum, á sama tíma aðgreinir góð hönnun vörumerkið ykkar frá fjöldanum og stuðlar að eftirminnanlegri notendaupplifun.
Við tryggjum það að skilaboð ykkar þíns séu bæði sjónrænt sannfærandi og áhrifamikil.

Vöruhönnun

Við þróum hugmyndir að vöru yfir í raunveruleika með hönnun sem sker sig svo sannarlega út.
Leyfðu okkur að taka við boltanum, hvort sem þið eruð að þróa glænýja vöru eða endurhanna.

Ljósmyndun og myndvinnsla

Við vitum hversu öflugt myndefni er og hversu þýðingarmikil tengsl það myndar við viðskiptavini ykkar.
Leyfðu okkur að smella og vinna myndefni sem fanga athygli og segja sögur.