Um okkur
Við erum Sentio.
Markaðs- og auglýsingastofa í Reykjavík
Við framleiðum myndbönd, hönnum auglýsingar og veitum framúrskarandi þjónustu við markaðssetningu.
Við erum Sentio
Við trúum því að öll vörumerki eiga sinn rétt á því að skína.
Megináherslur okkar eru því að veita framúrskarandi lausnir í markaðsstarfsemi sem lyfta vörumerkjum upp á hærra stig.
Náið samtarf
Við vitum að hvert og eitt fyrirtæki er einstakt.
Því gefum við okkur eins mikinn tíma og þarf til að kynnast viðskiptavinum okkar á dýpra stigi og þróa eins góðan skilning og hægt er á gildum þeirra, vörumerki, og starfsemi.
Þannig getum við tryggt að lausnir sem við veitum þeim endurspegli virkilega fyrirtækið þeirra.
Gildin okkar
01
Náin samskipti
Til að vinna eitthvað vel, þarf að skilja viðfangsefnið vel. Til að skilja viðfangsefnið vel þarf að kafa djúpt.
Þess vegna tileinkum við okkur náin samskipti við hvern og einn viðskiptavin.
02
Fagmennska
Við höldum uppi sterka staðla um gæði. Við einfaldlega göngum ekki frá verki fyrr en viðskiptavinir okkar eru sáttir.
03
Áreiðanleiki
Viðskiptavinir okkar vita að við skilum þeim nákvæmlega því sem uppfyllir þeirra óskir.
04
Liðsheild
Enginn er einn á báti, því samvinna er kjarninn í okkar nálgun. Við látum ljós hvers og eins í teymi okkar skína.
05
Stöðugar framfarir
Ef við náum ekki framförum, stöndum við í stað. Við leggjum áherslu á það að læra af reynslu okkar og aðlaga okkur að nýrri tækni og þróun til að vera í stöðugum vexti
06
Sköpunargleði
Við lifum fyrir því að skapa og leitum stöðugt eftir ferskum hugmyndum og nýjum lausnum til að leysa það sem fyrir framan okkur stendur. Án sköpunargleði væri tilveran grá.
Okkar nálgun